Aðalfundur Kaffibarþjónafélags Íslands

Mánudaginn 21. maí verður aðalfundur KBFÍ haldinn í húsakynnum Kaffismiðju Íslands að Kárastíg 1.

Sitjandi stjórn leitar eftir áhugasömum frambjóðendum fyrir næsta stjórnartímabil og er hægt að senda tölvupóst á kaffiisland@gmail.com til að lýsa yfir áhuga og fá nánari upplýsingar um hvað felst í því að sitja í stjórn KBFÍ.

Fundurinn hefst kl. 19.30 og er dagskrá fundarins sem hér segir:

Farið yfir störf félagsins á síðasta ári.
Reikningar síðasta árs.
Lagabreytingar.
Störf og keppnir framundan.
Kosning stjórnar

Allir velkomnir, heitt á könnunni og nóg af faglegum umræðum.

20120514-110832.jpg

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Úrtaka fyrir Nordic Barista Cup 2012!

Úrtakan fyrir Nordic Barista Cup 2012 (norðurlandaliðakeppni) er að þessu sinni skipt niður í 3 kvöld. Hvert kvöld er skipulagt af mismunandi kaffifyrirtæki, sem gefur skemmtilegan og fjölbreyttan blæ á úrtökuna. Reglan er sú að keppendur verða að mæta á öll kvöldin.
Fyrsta kvöldið var í kvöld, 1.mai, skipulagt af Kaffismiðju Íslands. Þau, Þórhallur Hafþórsson, Hildur Plóder, Gunnar Sturla, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Gunnar Helgi og Finnbogi Fannar, mættu hress til leiks. Skipt var í tvö lið, og þraut kvöldsins var að hvert lið fékk 2,5 kg af óbrenndu kaffi sem þau urðu að fylgja frá brennslu að viðskiptavininum á kaffihúsinu sem þau voru að reka í sameiningu. Þau byrjuðu á því að týna úr skemmdar baunir, síðan brenndu þau kaffið, týndu síðan skemmdir úr brenndu kaffinu. Þá var komið að því að skipuleggja kaffihúsið þar sem þau helltu upp á sama kaffið í V60, Aeropress, Syphon og expressó fyrir dómarana. þau voru dæmd af 5 dómurum sem skoðuðu ýmsa þætti fagmennskunnar og samvinnu á meðal liðsmanna. Áhorfendur voru þó nokkrir sem virtust einnig hafa gaman af því að fylgjast með liðunum vinna saman. Augljóst er að dómararnir hafa þarna gott en erfitt starf framundan. Næsta kvöld er þann 7.mai í Kaffitári í Höfðatorgi, og síðasta kvöldið er þann 17.mai í Te og Kaffi á Laugarvegi. Báðir viðburðirnir byrja kl. 19.00 og allir velkomnir að fylgjast með

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hinir ólíku vegir til kaffibollans

Dagskráin fyrir málþingið:

Hinir ólíku vegir til kaffibollans

Auglýsing um málþing.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Kaffimálþing 28.apríl 2012 í Háskóla Íslands

Kaffimálþingið er það fyrsta í kaffisögu Íslands og er það viðburður
Kaffibarþjónafélagsins í Apríl.
Málþingið er haldið í Háskóla Íslands þann 28.apríl.

Dagskrá og upplýsingar um fyrirlesara verða auglýstar eftir Páska

Hlökkum til að sjá sem flesta kaffibarþjóna og kaffiáhugamenn!

Kaffibarþjónafélag Íslands

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Finnbogi Fannar Kjeld er nýkrýndur Íslandsmeistari kaffibarþjóna 2012!

Eftir frábæra kaffihelgi náði kaffihátíðin hámarki í dag, sunnudag, 4.mars! þeir 3 herramenn sem voru með hæstu stig eftir forkeppni í gær, kepptu í úrslitum og háðu mjög harða baráttu um eftirsóttasta titilinn, Íslandsmeistari Kaffibarþjóna 2012. Úrslit urðu eftirfarandi:

1. Finnbogi Fannar Kjeld, Kaffitári 631,5stig
2. Gunnar Sturla Ágústuson, Kaffismiðju Íslands, 605 stig
3. Jan-Fredrik Winter, Íslensku Kaffistofunni, 574 stig

Finnbogi keppir á Heimsmeistarmóti Kaffibarþjóna 2012 sem fram fer í Vín í Austurríki 12.-15.júní í sumar. Núna hefst strangt æfingarferli þar sem hann undirbýr sig fyrir kaffiheiminn. Gangi þér vel Finnbogi. Hægt er að sjá frekari upplýsingar um heimsmeistaramótið á heimasíðu World Coffee Events, www.worldbaristachampionship.com

Til hamingju Ísland með svona frábæra kaffibarþjóna 2012!

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Keppendur á Íslandsmóti Kaffibarþjóna

Þá er komin niðurstaða í fjölda þátttakenda og eruð það 8 manns sem keppa sín á milli um titilinn Íslandsmeistari Kaffibarþjóna 2012.

Það verða því 3 keppendur í úrslitum, í stað 6 vegna þess að ekki náðist í 10 keppendur. Keppnin verður á Laugardaginn 3.mars, og hefst kl. 12.00 og svo úrslitin sunnudaginn 4.mars og hefst keppni kl. 13.30 og verðlaunaafhending kl. 15.00.

Keppendur eru:
Jan-Fredrik Winter, Íslenska Kaffistofan
Gunnar Guðjónsson, sjálfstætt starfandi kaffibarþjónn
Hildur Plóder, Kaffitári
Elísabet S. Ágústsdóttir, Kaffitári
Gunnar Sturla Ágústuson, Kaffismiðju Íslands
Finnbogi Fannar Kjeld, Kaffitári
Daníel Haukur Arnarson, Te og Kaffi
Aðalheiður Steina Guðmundsdóttir, Kaffitári,

Íslandsmót í Mjólkurlist og Kaffi í góðum vínanda hefur verið fellt niður vegna þátttökuleysis og verður því Kaffihátíðin okkar með fókusinn á Íslandsmót Kaffibarþjóna.

Ýmis kaffitengd fyrirtæki verða með bása/borð, líkt og í fyrra og verður svaka skemmtileg kaffistemning í húsinu.

Í tilefni hátíðarinnar er ekki úr vegi að líta á lítið myndband sem Vala Stefánsdóttir útbjó um ríkjandi Íslandsmeistara, Tuma Ferrer.

Posted in Uncategorized | 3 Comments

Skráningarfrestur í kaffikeppnir í mars.

Jæja, þá er komið að því! Íslandsmót kaffibarþjóna verður haldið í Smáralind 2. – 4. mars næstkomandi. Auk aðalkeppninnar verða Íslandsmót í mjólkurlist, Íslandsmótið Kaffi í góðum vínanda og Íslandsmót í deiglukaffi haldin og er því um sannkallaða Kaffihátíð að ræða.

Að þessu sinni verða allar keppnirnar haldnar yfir alla dagana og sunnudagurinn verður einn allsherjar úrslitadagur sem lýkur með verðlaunaafhendingu og lokahófi.

Rétt er að tilkynna að skráningarfrestur í allar þessar keppnir er til kl. 23.59 föstudaginn 3. febrúar og eru allir keppendur hvattir til að lesa reglurnar vel og vandlega en þær má finna á erlendum heimasíðum keppnanna sem finna má hér fyrir neðan. Keppnisgjald á mótin er 2.500 kr. og er æskilegt að millifært sé á reikning Kaffibarþjónafélagsins nr. 513-26-440401 kt. 440401-2010 um leið og skráning fer fram. Dagskrá mótsins verður auglýst á næstu dögum.

Skráning fer fram með tölvupósti til Kaffibarþjónafélagsins á kaffiisland@gmail.com.

World Barista Championship
World Latte Art Championship
World Coffee in Good Spirits Championship
World Cezve / Ibrik Championship

Mynd af mbl.is

Posted in Uncategorized | Leave a comment

USA kaffibarþjónar og kaffismökkun

Kaffibarþjónafélag Íslands kynnir fyrsta viðburð ársins:

Dags: 14.janúar 2012
Klukkan: 19:30 – 22.00
Aðgangseyrir: 500
Staðsetning: Kaffismiðja Íslands, Kárastígur 1, 101 Rvík

Fyrirlesari: Jay Lijewski, fyrrverrandi framkvæmdastjóri, (GM of West Coast Operations hjá Intelligentsia Coffee and Tea)
Jay hefur unnið sem kaffibarþjónn í mörg ár og nú síðast hjá Intelligentsia þar sem hann vann sig uppí framkvæmdastjóra stöðu. Jay er okkur einnig góðkunnur sem kynnir á Nordic Barista Cup sem og á WBC síðast liðin ár.
Jay er hér staddur á landi með konu sinni Jessi, og eins og við munum öll þá trúlofuðu þau sig á Nordic Barista Cup á Íslandi 2009. Þau eru í stuttu stoppi og fara yfir til Kaupmannahafnar í næstu viku. Þau búa í LA og ferðast um á mótorhjóli eins og er í tísku meðal kaffibarþjóna í LA þessa stundina.
Jay safnaði saman kaffi frá mismunandi kaffibrennslum í USA sem hann kemur með til að leyfa okkur að smakka og kynnast. Hann verður með stutta tölu um hvernig það er að vera kaffibarþjónn í USA og menninguna í kringum það. Það verður því spennandi að heyra hann segja frá reynslu sinni og að smakka kaffið.
Allir eru velkomnir að koma og hlusta á Jay og smakka kaffið sem hann bíður uppá.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Jólakaffismökkun 2011

Kaffibarþjónafélags Íslands og SCAE (Specialty Coffee Assosiation of Europe) héldu árlega jólakaffismökkun í dag.

Kaffið: Teknar voru fyrir 3 hátíðarkaffitegundir sem framleiddar eru á Íslandi, 2 tegundir frá Te og Kaffi www.teogkaffi.is  og 1 kaffitegund frá Kaffitári  www.kaffitar.is . Einnig voru teknar 3 hátíðartegundir frá erlendum kaffivinum okkar.

El Salvador frá http://www.craftedcoffeecompany.co.nz/ Christ Church á Nýja Sjálandi. Bóliviu kaffi frá http://www.intelligentsiacoffee.com/ Chicago,  Papú Nýja Guinea frá Counter Culture coffee http://counterculturecoffee.com/home

Aðferðin: Smökkkunin var með öðru sniði en vanalega því hellt var upp á kaffitegundirnar á 3 mismunandi vegu, Í Sogkönnu (Syphon) í Chemex könnu og í SVART könnunni frá Wilfu.

Hverjir mættu: 17 hressir kaffismakkar mættu á jólakaffismökkunina að þessu sinni, frá kaffihúsum/veitingarstöðum Mokka, Kaffismiðjunni, Dill, Kaffibílnum, Litla Bóndabænum og svo einnig aðrir kaffismakkararnir Lúkas, Haffi, Birkir og Stefán.

 

Niðurstöður:
Hátíðakaffi Kaffitárs – Brasilia Daterra Sweet Collection
Valhnetur, vel fyllt, Svartu pipar, Karamella, Vanilla, Dökkt sýróp, Malt og þykk áferð eins og malt
Hátíðarkaffi Te og Kaffis – ekki vitað hvað er í blöndunni
Appelsínubörkur, ristaðar hnetur, lítil fylling, brennslubragð, gæti verið gott í expressó
Jólakaffi Te og Kaffis – ekki vitað hvað í blöndunni
Reykt bragð, jarðarkeimur, miðlungs fylling, brennslubragð
Crafted Coffee Company – El Salvador – SVART WILFA uppáh, uppáhelling
Venjubundið gott kaffi, bjart, létt, appelsínusýrni, mjólkursúkkulaði. Spennandi að prófa í öðrum uppáhellingum.
Intelligentsia – Anjilanaka Bólivía – Sogkanna (syphon)
Bjart, Sítrónusýrni, Hunang, Sinfónía, Allskonar skemmtilegt, sætt greip, blóðappelsína, hindber
Counter Culture Coffee- Papúa Nýja Gínea – Chemex kanna
Sætir suðrænir ávextir, flókið, þungt, mikil fylling, múskat, vínber blá, papaya, mjúkt, gott jafnvægi

Eftir tveggja tíma formleg jólasmökkun var slegið á léttari strengi með Jólaglöggi, piparkökum og yndælis brauði sem David frá Litla Bóndabænum bakaði og kom með. Og á meðan gætt sér á veitingum voru lýsingarnar úr smökkuninni teknar saman og niðurstöður fengnar.

Kaffibarþjónafélg Íslands og SCAE á Íslandi þakka Kaffitári, Te og Kaffi, Counter Culture, Intelligentsia og Crafted Coffee Company fyrir að gefa kaffi í smökkunina

Posted in Kaffismökkun, Uncategorized | Leave a comment

Litlu jól Kaffibarþjónafélags Íslands.

Hohohó jólakaffivinir!

Litlu jól Kaffibarþjónafélagsins og jólakaffismökkun eru á næsta leiti en þau verða haldin sunnudaginn 4. desember kl. 14.00 í húsakynnum Kaffismiðju Íslands, Kárastíg 1, Reykjavík.

Boðið verður upp á fagsmökkun á þeim jólakaffitegundum sem eru á markaðnum þetta árið við ómþýðan hljóm jólatónlistar sem við þekkjum öll og í framhaldinu sötrað á hinu rómaða jólaglöggi Sonju og nartað í eins og piparköku, eða tvær…

Viðburðurinn er öllum opinn og án endurgjalds en gestir eru beðnir um að skrá sig með tölvupósti á kaffiisland@gmail.com svo hægt sé að hnoða í passlegt magn af piparkökum…

Litlujól KBFÍ 2010

Posted in Uncategorized | Leave a comment